Um frábæra Samoyedinn !
Samoyed: Hvort sem að þú ert að leita að kúrufélaga, göngufélaga eða tryggum besta vini, þá hefur samoyedinn kosti í það allt. En áður en þú fellur fyrir þeim skulum við kafa ofan í það góða, slæma og hreint út sagt yndislega við þessa tegund.
Uppruni:
Samoyed tegundin er frá árinu 1000 f.Kr og hefur ekki breyst mikið í útliti eða skapgerð allan þann tíma. Tegundin er kennd við Samoyede fólkið, hirðingjaættbálk sem bjó í norðurhluta Rússlands og Síberíu, nálægt heimskautsbaugnum. Ættbálkurinn notaði hundana sem þeir kölluðu bjelkiers til að smala hreindýrum, draga sleða, halda á þeim hita og einstaka sinnum til að veiða birni.
Góða við Samoyedinn :
Vingjarnlegir & félagslyndir: Þessir hundar ELSKA fólk.Þeir þrífast á mannlegum samskiptum og munu glaðir heilsa öllum eins og löngu týndum vini (ekki góðir varðhundar)
Brosið þeirra: Einkennandi bros þeirra er ekki bara til sýnis! þau eru glaðlynd, hamingjusöm tegund sem lífgar upp hversdagsleikann en einnig gerir það að verkum að þau slefa lítið sem ekkert.
Ævintýragjörn: Vantar þig æfingafélaga? Samoyedar eru kraftmiklir og elska útivistarævintýri, hvort sem það er að ganga, hlaupa eða leika sér í snjónum en þeir elska þó líka að hafa það rólegt og kósý!
Skapgerð: Þeir eru einstaklega blíðir og þolimæðir. Þau eru frábær með börnum og eru þeir því fullkominn fjölskylduhundur!
Hypoallergenic? : Þeir eru taldir vera "hypoallergenic" sem þýðir að það eru minni líkur á ofnæmisvaldandi viðbrögðum frá þeim en það er þó ekki ómögulegt.
Ókostir sem þarf að pæla í áður en þú færð þér samoyed:
Hárlos : þau fara úr feld einu sinni til tvisvar á ári en annars fara þau ekki mikið úr hárum.
Að viðhalda feldinum : það verður að greiða feldinum reglulega til að koma í veg fyrir flækjur og þæfingu í feldinum. lágmarki 2x í viku en þó er best að gera það daglega, langbest er að fara með þá til hundasnyrtirs í blástur þegar að þeir eru í feldlosi.
Þrjóskir: Að Þjálfa Samoyed þarfnast þolimæði og samræmi. Þau eru virkilega gáfuð tegund og læra því fljótt en eru á sama tíma mjög þrjósk og geta verið með valkvæðna heyrn.
Orkumiklir: Þeir geta verið orkumiklir og verið óþekkir ef þeim leiðist of mikið eins og flest allir hundar .
Skemmtilegar staðreyndir :
Snjóáhugamenn: þau dýrka algjörlega snjóinn og munu rúlla, grafa og skoppa um eins og kengúrur.
Spennandi félagar: Samoyedarnir eru þekktir fyrir spjall og raddbeitingu .
Fyndnir: Þeir gera oft kjánalega hluti sem fá þig til að hlæja (Algerir kjánar).
Samantekt:
Samoyed er ótrúlega skemmtileg tegund full af ást og fjöri svo ef að þú ert tilbúin í áskorunina að elska,þjálfa og gefa þeim athygli munt þú tryggja þér félaga sem gefur þér endalausa gleði og smá kaos í líf þitt .